Heiður og tær himinn, létt gola og öldugjálfur. Það er varla hægt að slappa betur af en við ströndina, ekki síst þegar börnin hamast í vatninu eða dunda sér í rólegheitum við að moka sandinum. Pabbi, mamma, eigum við að skoða ormana í sjónum á morgunn? Af hverju ekki? Þá er líka hægt að fara í hringferð um höfnina eða skoða selina sem flatmaga í fjörunni, nú eða láta á það reyna með námskeiði hversu dugleg þið eruð á vatnaskíðum. Ævintýragjörn börn geta farið í sjóræningjaleik eða náð sér í hér um bil alvöru skipstjórnaréttindi.
Hvort sem það er Norðursjórinn með öllum sínum vitum sem lokkar eða hinir fallegu krítarklettar við Eystrasaltið, skiptir ekki máli. Frí við hafið er frábært fyrir alla og þegar veðrið bregst er alltaf hægt að skoða sögufræg skip og sædýrasafnið, eða risastóra beinagrind af hval.


