beint að efninu beint að aðalvalmynd beint að aukavalmynd beint að leit
 
 
Want to know more about Germany?
Dip into our inspiring eBrochure and get your first impressions about the sheer diversity of Germany as a travel destination. The eBrochure is available in 32 languages.

eBrochure
eBrochure

Further information:
You can find more information about Germany on our website at: www.germany-tourism.de, or on our local websites.

 

Þýskaland - kjörland fyrir fjölskyldur

Börn horfa í myndavélina að ofan
Þýskaland er öllum löndum betra fyrir fjölskylduferðir: Jafnt smábörnum sem ömmum og öfum líður hér vel. Skemmti- og tómstundagarðar þjóna vel ævintýraþyrstum  ferðalöngum, eins og til dæmis í brattasta rússíbana veraldar. Úti í náttúrunni lokka líka ævintýri eins og  kanúsiglingar og klifurnámskeið í Grand Canyon í Saxlandi.
 
Faðir og sonur á fjöllum
Fyrir þá sem eru hrifnir af fjölbreytni er ein af hinum tilbreytingarríku  ferðamannaleiðum einmitt það rétta. Hér getur að líta rómantíska kastala  og sérkennilega steingervinga og hver veit nema Hans og Gréta skjóti upp kollinum, þegar minnst varir. Það er líka spennandi fyrir foreldra og börn að heimsækja söfn, þar sem er hægt að upplifa jarðskjálfta eða ferðast  í gegnum ólík tímaskeið í sögu Berlínar.
 
Hinir fjölmörgu ódýru  gististaðir eru líka með fjölda tilboða: notalegar íbúðir, bændagisting, tjaldstæði í fallegu umhverfi og farfuglaheimili, að ógleymdum fjölmörgum sérstökum fjölskyldu og barnahótelum. Sérstaklega notalegt er að ferðast með lestum því þá hefst fríið svo að segja um leið og ferðamaðurinn kemur út af heimili sínu.
 
Að upphafi síðunnar