beint að efninu beint að aðalvalmynd beint að aukavalmynd beint að leit
 

Select your language:


All other countries:
International websites in English or German
Want to know more about Germany?
Dip into our inspiring eBrochure and get your first impressions about the sheer diversity of Germany as a travel destination. The eBrochure is available in 32 languages.

eBrochure
eBrochure

Further information:
You can find more information about Germany on our website at: www.germany-tourism.de, or on our local websites.

 

Yfirlýsing Þýska ferðamálaráðsins um persónuvernd

Persónuvernd ykkar er okkar mál

Við gleðjumst yfir áhuga ykkar á samtökum okkar og því sem höfum fram að færa eða þeirri þjónustu sem við höfum að bjóða og vonum að þið finnið til öryggis gagnvart persónubundnum upplýsingum, þegar þið heimsækið vefsíðurnar okkar. Því við tökum verndun persónulegra upplýsinga um ykkur alvarlega. Það er fyrir okkur sjálfsagt mál að virða það sem segir í þýskum lögum um persónuvernd.

Við viljum að þið vitið, hvenær við öflum hvaða gagna og hvernig við notum þau. Við gerum tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir, sem tryggja að reglurnar um persónuvend séu bæði virtar af okkur og öðrum þjónustuaðilum.

Persónubundin gögn

Persónubundin gögn eru upplýsingar um ykkar einkamál. Undir þau falla t.d. nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang. Þið þurfið ekki að opinbera nein persónubundin gögn til að nota vefsíðuna okkar. Í vissum tilvikum þurfum við þó nöfnin ykkar og heimilisföng til að geta veitt ykkur ákveðna þjónustu.

Það sama gildir t.d. fyrir það þegar upplýsingar eru sendar, vörur pantaðar eða einstaklingsbundnum spurningum svarað. Þegar það er nauðsynlegt, bendum við ykkur sérstaklega á það. Að auki geymum við og nýtum ekki önnur gögn en þau sem þið látið okkur í té sjálfkrafa eða af fúsum frjálsum vilja.

Þegar þið nýtið ykkur þjónustuna notum við alla jafna eingöngu þær upplýsingar sem þaf til að veita hana. Ef beðið er um frekari upplýsingar er fólki í sjálfsvald sett hvort þær eru veittar eða ekki. Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að veita umbeðna þjónustu og til að gæta hagsmuna viskiptavinarins.

Reglur um tilgang persónulegra upplýsinga

Persónulegar upplýsingar sem þið látið í té eru almennt notaðar til að svara fyrirspurnum, til að ganga frá samningum og til að kynna  tilboð og miðla upplýsingum.  Til að rækta samband okkar við viðskiptavinina nota starfsmenn okkar gjarnan persónulegar upplýsingar, sem og til að kynna tilboð sem gætu nýst viðskiptavinum eða til að gera skoðanakannanir á netinu til að geta betur sinnt þörfum og kröfum viðskiptavinarins.

Að sjálfsögðu virðum við það ef  þið eruð ekki reiðubúin að láta í té persónulegar upplýsingar til að styrkja sambönd okkar við viðskiptavinina. (sérstaklega hvað varðar beina markaðssetningu og markaðskannanir)

Tilgangsbundin notkun

Við notum persónulegar upplýsingar frá ykkur einungis í þeim tilgangi sem þið hafið verið upplýst um, og nýtum upplýsingarnar ekki  eða látum þær í té til þriðja aðila nema að fengnu nauðsynlegu leyfi frá ykkur.

Persónulegar upplýsingar eru einungis notaðar eða sendar til opinberra stofnana þegar það er leyfilegt samkvæmt lögum, eða við eum skylduð til þess af dómstólum. Starfsmenn okkar og samstarfsmenn eru líka bundnir þagnarskyldu og til að halda reglur varðandi meðferð persónulegra upplýsinga samkvæmt þýskum lögum um persónuvernd.

Ópersónubundnar upplýsingar, sem eru skráðar sjálfkrafa

Þegar netsíður okkar eru notaðar eru eftirfarand upplýsingar geymdar af skipulags- og tæknilegum ástæðum: nafn síðnanna sem kallaðar eru fram, leitaraðferðarinnar sem er notuð og tölvukerfisins,  hvaða dag og á hvaða tíma upplýsinga er leitað, hvaða leitarvélar eru notaðar, nöfn og IP-föng þeirra skjala sem er hlaðið inn.

Þessar tæknilegu  upplýsingar eru ekki undir nafni og veita okkur aðeins tölfræðilegar vísbendingar sem hjálpa okkur að þróa og móta netsíður okkar, og gera þær meira aðlaðandi fyrir viðskiptavini. Þessar nafnlausu upplýsingar eru aðgreindar frá persónulegum upplýsingum og geymdar i sérstöku öryggiskerfi þar sem ómögulegt er að tengja  þær við einstakar persónur. Persónulegar upplýsingar um ykkur og ykkar einkahagi njóta sem sagt alltaf verndar.

Smákökur

Þegar þið skoðið netsíður okkar, getur það átt sér stað að við setjum inn upplýsingar í formi lítilla smákaka. Smákökur eru lítil textaskjöl sem birtast á skjánum og eru geymd  harða disk tölvunnar ykkar.

Með þessu móti eru engar persónulegar upplýsingar um notandann geymdar, heldur aðeins netfang net-skýrslunnar. Þessar upplýsingar þjóna þeim tilgangi að þið þekkist, næst þegar þið heimsækið vefsíðuna okkar og auðvelda ykkur leitina. Með smákökunum er t.d. hægt að laga vefsíðu að ykkar þörfum eða að geyma aðgangsorð ykkar þannig að þið þurfið ekki að setja það inn í hvert sinn sem farið er inn á síðuna.

Að sjálfsögðu getið þið líka skoðað síðurnar okkar án smákakanna. Ef þið viljið ekki að við berum aftur kensl á tölvurnar ykkar, getið þið komið í veg fyrir að smákökurnar séu geymdar á hörðu diskunum ykkar með þvi að velja skipunina "ekki samþykkja neinar smákökur. Upplýsingar um hvernig það fer nákvæmlega fram, finnið þið í leiðbeiningum vefþjónsins ykkar. Ef  þið samþykkið ekki neinar smákökur, getur það leitt til þess að þið getið einungis nýtt ykkur takmarkaðan fjölda þeirra möguleika sem eru í boði á vefsíðunni.

Börn

Börn undir átján aldri eiga ekki að láta okkur í té neinar persónulegar upplýsingar, án samþykkis foreldra eða forráðamanna. Við söfnum ekki og látum ekki af hendi upplýsingar um börn og unglinga.

Öryggi

Við höfum gert tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að vernda þær persónulegu upplýsingar sem þið hafið látið okkur í té fyrir því að glatast, skaddast, vera misnotaðar eða notaðar með ólöglegum hætti. Starfsmenn okkar og samstarfmenn eru allir bundnir sérstökum ákvæðum laga um persónuvernd, hvað varðar meðferð persónulegra upplýsinga.

Til að vernda persónulegar upplýsingar eru þær geymdar i sérsöku læstu kerfi,  til að koma í veg fyrir mögulega misnotkun þriðja aðila. Öryggiskerfi okkar er svo sífelllt endurskoðað og þróað til samræmis við nýjustu tækni hverju sinni.

Breytingar á reglum um verndun persónulegra upplýsing

Við áskiljum okkur rétt  til að breyta aðferðum okkar til að gæta öryggis og vernda persónulegar upplýsingar,  að svo miklu leyti sem hin tæknilega þróun krefst þess. Þegar slíkar breytingar eiga sér stað lögum við reglur okkar um persónuvend líka að þeim. Gætið þess því vinsamlegast að fygjast með nýjustu útgáfu af reglum okkar um persónuvernd.

Andmælaréttur

Þið getið ávallt sagt skoðun ykkar eða fengið upplýsingar um notkun og geymslu á persónulegum upplýsingum ykkar, hjá okkur. Ef þörf krefur, hafið þá vinsamlegast samband við Olaf Schlieper, Deutsche Zentrale fur Tourismus e.V. í 60325 Frankurt/M eða sendið tölvupóst á olaf.schlieper@d-z-t.com .

Spurningar, ábendingar, kvartanir

Ef þið hafið einhverjar frekari spurningar varðandi verndun pesónulegra upplýsinga og viljið vita eitthvað nánar um vinnsluna á ykkar eigin gögnum, getið þið snúið ykkur beint til sérfæðings okkar um þessi mál, hann heitir Stephan Schlangen, Deutsche Zentrale fur Tourismus e.V, Beethovnstrsse 69 í 60325  Frankfurt/M, sími : +49-69-97464-257, bréfsími: +49-69-742518, netfang: stephan.schlangen@d-z-t.com. Hann veitir ykku líka upplýsingar og sinnir ábendingum eða kvörtunum, ef svo ber undir.
 
Að upphafi síðunnar