Þjóðgarðar ná yfir víðáttumikið, sérlega fagurt eða fágætt upprunalegt landslag. Þeim er ætlað að varðveita náttúrulega fjölbreytni sjaldgæfra jurta- og dýrategunda. Hér er staðinn vörður um allt sem gerist í náttúrunni og hún ein ræður sínu ferli.
Einstæð náttúra og upprunalegt landslag eru aðalsmerki þýsku þjóðgarðanna. Með hjálp vegvísa, upplýsingaefnis, leiðsagnar og - í sumum tilvikum - upplýsingamiðstöðva, geta gestir kynnt sér sérstæðan heim þjóðgarðanna.
Með náttúrulegum sérkennum sínum er hver einasti þýski þjóðgarður einstök upplifun fyrir ferðamenn.


