Auk náttúruverndar er friðlöndunum jafnframt ætlað að varðveita fornar venjur og siði, hefðbundið handverk, minjar um sögulega búsetu og byggingarlist, sem fellur með sérstökum hætti að landslaginu.
Í þýsku friðlöndunum er þess sérstaklega gætt að hagsmunir náttúruverndar fari saman við þarfir þeirra sem þar leita sér afþreyingar (með gönguferðum, hjólreiðum. vatnaíþróttum, eða skoðun menningarminja). Hér er áherslan fyrst og fremst lögð á samskipti manna við landslag og náttúru.
Vegna landslagsins eru friðlöndin kjörsvæði fyrir þá sem vilja njóta hvíldar. Þau eru alls 90 talsins og dreifast nokkuð jafnt um allt Þýskaland. Þannig eru þau mikilvægur liður í að vernda menningarlandslag ólíkra svæða.


