beint að efninu beint að aðalvalmynd beint að aukavalmynd beint að leit
 

Select your language:


All other countries:
International websites in English or German
Want to know more about Germany?
Dip into our inspiring eBrochure and get your first impressions about the sheer diversity of Germany as a travel destination. The eBrochure is available in 32 languages.

eBrochure
eBrochure

Further information:
You can find more information about Germany on our website at: www.germany-tourism.de, or on our local websites.

 

Wiesbaden
Alþjóðleg „heilsumiðstöð“

Wiesbaden – upplýst heilsuhús með gosbrunni fyrir framan
Ölkelduheilsubaðið í Wiesbaden er, með sínum heitu, heilnæmu uppsprettum, eitt af elstu heilsuböðum í Evrópu. „Heilsuborgin“ er nú orðin lækningamiðstöð í háum gæðaflokki, þar sem gestir koma jafnvel langt að.
 
Upphaf síðu

Baden-Baden
Skemmti- og heilsuböð

Baden-baden  - kona í nuddbaði í Caracalla-lindinni
Fyrir þann sem vill hvíla sig og leggja rækt við heilsuna, eru ölkelduheilsuböðin í Baden-Baden rétti staðurinn. Það eitt að dvelja á þessum baðstað með sínu alþjóðlega yfirbragði, er endurnæring fyrir sál og líkama.
 
Upphaf síðu

Bad Kissingen
Það er fleira heilsubót en vatnið

Bad Kissingen – lækningahúsið þar sem hægt er að anda að sér söltu lofti
Kissingens er fyrst getið í heimildum fyrir um 1200 árum og 1883 gerði bæverski „ævintýrakóngurinn“ Lúðvík 2. staðinn að baðstað. Margir þekktir keisarar, konungar, stjórnmálaskörungar, tónlistarmenn og skáld notuðu Bad Kissingen sem heilsubrunn.
 
Upphaf síðu

Bad Elster
Heilnæmt vatn úr freyðandi uppsprettulindum

Bad Elster – konunglegt heilsuhæli með fögru blómavali
Heilsu- og baðstaður, sem og eitt af elstu leirlækningaböðum Þýskalands, með mildu, en rysjóttu veðri í „heilsuhjarta Evrópu“. Íburðarmikil hús setja svip á hreinlegan og snyrtilegan bæinn. Í dalnum, sem er þakinn ilmandi skógum, streymir „vatn lífsins“ úr tíu lækningalindum. Þegar á öldum áður lögðu efnaðir borgarar sér þetta lækningavatn til munns.
 
Upphaf síðu

Bad Dürkheim
Hafgola í miðri borg

Bad Dürkheim – Saltnáma, umkringd vínviði
Hið opinbera heilsuhæli Bad Dürkheim hefur allt að bjóða sem þarf til að gera heilsudvölina góða. Áhersla er lögð á nútímalega nýtingu gamalgróinna aðferða sem og að tengja þær við nútímalegar lækningaaðferðir með skynsamlegum hætti. Hér er svo auðvelt að gera sjálfum sér gott.
 
Upphaf síðu

Baltic resort of Binz
Eystrasaltsbaðið Binz - Vellíðan a la carte

Binz – hópur dvalargesta nýtur tónleika undir berum himni
Glæsilega Eystrasaltsbaðið, Binz, er stærsta sjóbaðið á eynni Rügen og staðsett við eina af fegurstu víkum eyjarinnar, Prorer-víkina. Loftslagið á Binz er rysjótt, en milt og með 1872 sólarstundum á ári er þetta einn af sólríkustu stöðum Þýskalands.
 
Upphaf síðu

Timmendorfer Strand
Salt úr Eystrasalti hressir og fegrar

Timmendorfer Strand – Kona stendur á höndum á ströndinni
Hér, þar sem Eystrasaltið verður að risastórum buslpotti, er Eystrasaltsbaðið Timmendorfer Strand-Niendorf. Heilsustaður með öllu sem sál og líkami þarfnast, sem veldur því að dvalargestir snúa sífellt aftur.
 
Upphaf síðu

Bad Sassendorf
Náttúruleg blanda af uppsprettuvatni, salti og leir

Bad Sassendorf – Á milli saltpíramída liggja fimm manns og njóta salta loftsins
Bad Sassendorf, heilsustaðurinn þar sem stutt er í hvíld, slökun og vellíðan. Andrúmsloftið sem mætir gestum, er létt og afslappað, húsin eru í vestur-felískum bindingarstíl, og undurfögur náttúra allt um kring. Hér státa menn af aldagamalli þekkingu á heilsurækt.
 
Upphaf síðu

Norderney
Náttúrulega heilnæm

Norderney – ungmenni njóta gufubaðs
Sjávarbaðið Norderney við Norðursjó er elsta baðið á þessum slóðum. Verðmæti hafsins sem hér eru nýtt – vatn, leirset og salt – valda litlum læknisfræðilegum kraftaverkum og blása burtu sorg og sút, með hreinu sjávarloftinu.
 
Upphaf síðu

Bad Saarow
Hraustur og hress með hjálp vatnsins

Bad Sarrow – tvær konur í Saarowlindinni
Bad Saarow við „Märkiska hafið“ gerir mönnum gott. Hið opinberlega viðurkennda salt- og leirbað hefur löngum verið vinsæll heilsubær, því það á að vera gaman að vera hraustur!
 
Upphaf síðu

Yfirlitskort

Yfirlitskort með öllum vinsælustu ferðamannastöðum Þýskalands
Klikkið hér!