beint að efninu beint að aðalvalmynd beint að aukavalmynd beint að leit
 

Select your language:


All other countries:
International websites in English or German
Want to know more about Germany?
Dip into our inspiring eBrochure and get your first impressions about the sheer diversity of Germany as a travel destination. The eBrochure is available in 32 languages.

eBrochure
eBrochure

Further information:
You can find more information about Germany on our website at: www.germany-tourism.de, or on our local websites.

 

Lübeck-marsípan

Niederegger-marsípan

Sem þúsund ára gömul drottning Hansasambandsins er þessi háborg gotneskra múrsteinabygginga, líka þekkt fyrir framleiðslu sem margir hafa dálæti á – hið ósvikna Lübeck-marsípan. „Rotspon“-rauðvínið er samruni þýskrar og franskrar víngerðarlistar, sem ættaður er úr vínkjöllurum borgarinnar.

 
Upphaf síðu

KaDeWe í Berlín

Berlin, KaDeWe © BTM, Koch

KaDeWe var einn af fyrstu stórmörkuðum Þýskalands. Þegar árið 1907 stóð viðskiptavinum þar til boða gríðarlegt vöruúrval á fimm víðáttumklum hæðum. Hér freistaði fyrsta flokks neysluvara – og þetta oðspor hefur loðað við húsið til þessa dags. Sælkeradeildin á 6. hæð er orðin að goðsögn.

 
Upphaf síðu

Kurfürstendamm

Berlin, Kurfuerstendamm © BTM

Reiðleið kjörfursta á 16. öld sem breyttist í nýtískulega verslunarbreiðgötu – hin fræga 50 metra breiða og 3,5 kílómetra langa samgönguæð hverfisins Charlottenburg á milli KaDeWe, Europacenter, „Minningarkirkjunnar“ og Wilmersdorf,  státar af einstakri fjölbreytni í verslun og  afþreyingu.

 
Upphaf síðu

Friedrichstrasse í Berlín

Berlin, Friedrichstrasse, Galerie La Fayette © BTM

Eftir sameininguna var Freidrichstrasse, sem áður var í austurhluta borgarinnar, vakin til nýs lífs og státar nú af mörgum glæstum nýbyggingum. Alþjóðlegt yfirbragð og vöruval – minnir á 5. Tröð í New York.

 
Upphaf síðu

Miðborgin í Rostock

Rostock, Kröpeliner Strasse

Arfleið Hansa-tímans, verslanir í fyrrverandi geymsluskemmum eða í sögulegum villum. Saga og sjávarilmur þessarar fornu verslunarmiðstöðvar fylgja þeim sem rölta um, versla og njóta lífsins í miðbænum.

 
Upphaf síðu

Mönckebergstrasse í Hamborg

Mönckebergstrasse í Hamborg

Sögufrægar framhliðar húsa í hjarta Hansaborgarinnar – nútímalegt vöruval í fornum kauphöllum eða nútímabyggingum. Stærsta sportvöruverslun og stærsti raftækjamarkaður í Evrópu, sem og stærsta skóverslun álfunnar, vekja löngun gesta til að versla.

 
Upphaf síðu

Jungfernstieg í Hamborg

Hamborg, yfirbyggðar Alster-verslunargöturnar, Jungfernstieg

 Hafnarborgarstemmningin, tígulegir svanirnir og bátar á Binnenalster-vatninu, í bakgrunninum reisulegar byggingar við breiðgötur og tilfinningin fyrir því að vera „nálægt hringiðunni“ – allt þetta gerir Jungfernstieg jafn heillandi og raun ber vitni.

 
Upphaf síðu

Schnoor-hverfið í Bremen

Schnoor-hverfið í Bremen

Þröngar, rómantískar götur og lítil íbúðarhús í skugga kirkju heilags Jóhannesar. Elsta íbúðarhverfi Hansaborgarinnar, áður fiski- og handverksmannahverfi, en í dag eru hér listamenn, gallerí og fjölskrúðugt úrval verslana og veitingahúsa. 

 
Upphaf síðu

BOSS verksmiðjusala

Verksmiðjusalan í Metzingen

Verksmiðjusala í hjarta bæjar eins og í Metzingen er frekar sjaldgæf. Hugo Boss-merkið, leiðandi merki í tískuheiminum, var upphafið að því að fjölmörg önnur alþjóðleg fyrirtæki hafa líka komið sér fyrir hér.

 
Upphaf síðu

Potsdamer Arkaden-verslunargata í Berlín

Potsdamer Platz Arkadenverslunargatan í Berlín

Alþjóðlegur hópur arkítekta hannaði hin tilkomumiklu borgarmannvirki umhverfis Potsdam-torgið, svo sem Beisheim Center, Daimler Chrysler Centereða Sony Center með hinu sérstæða tjaldþaki. Mesta vöruvalið er við u.þ.b. 200 metra langa verslunargötuna Potsdamer Platz Arkaden.

 
Upphaf síðu

Yfirlitskort

Yfirlitskort með öllum vinsælustu ferðamannastöðum Þýskalands
Klikkið hér!