beint að efninu beint að aðalvalmynd beint að aukavalmynd beint að leit
 

Select your language:


All other countries:
International websites in English or German
Want to know more about Germany?
Dip into our inspiring eBrochure and get your first impressions about the sheer diversity of Germany as a travel destination. The eBrochure is available in 32 languages.

eBrochure
eBrochure

Further information:
You can find more information about Germany on our website at: www.germany-tourism.de, or on our local websites.

 

Járnvinnslan í Völklingen

Járnvinnslunni í Völklingen, þar sem hrájárn var forðum unnið, var hætt 4. júlí 1986. Árið 1994 var svæðið sett á heimsminjaskrá UNESCO, sem fyrsta járnvinnsla sinnar tegundar á blómaskeiði iðnvæðingarinnar. Nú er járnvinnslan í Völklingen eitt merkilegasta athfnasvæði af þessu tagi frá 19. og 20. öld sem til er í heiminum og evrópsk miðstöð fyrir list og iðnmenningu. Frá því að svæðið var opnað almenningi árið 2000 er gestafjöldinn kominn vel yfir eina milljón. Þar með er svæðið, sem er alls 600 þúsund fermetrar, orðið fjölsóttasti menningarstaður héraðsins Saar-Lor-Lux og spennandi þemu- og upplifunarstaður.

Blásturssalurinn, sem er rúmlega 6000 fermetra stór og búinn vélum sem minna helst á risaeðlur, útisvæðið með sex risavöxnum bræðsluofnum, sem og einu hallandi lyftu sinnar tegundar í heiminum, telast til snjöllustu tækniafreka verkfræðinga á 20. öldinni. 30 metra hár pallurinn með bræðsluofnunum, staðurinn þar sem kolunum og koparnum var mokað inní ofnana, er nú risastór útsýnispallur, og þar fyrir ofan eru lofthitararnir í 45 metra hæð. 
 
Að upphafi síðunnar