beint að efninu beint að aðalvalmynd beint að aukavalmynd beint að leit
 

Select your language:


All other countries:
International websites in English or German
Want to know more about Germany?
Dip into our inspiring eBrochure and get your first impressions about the sheer diversity of Germany as a travel destination. The eBrochure is available in 32 languages.

eBrochure
eBrochure

Further information:
You can find more information about Germany on our website at: www.germany-tourism.de, or on our local websites.

 

Messelgryfjan

Messelgryfjan er einstæður vitnisburður um ákveðið tímaskeið í jarðsögunni og þær loftslagsbreytingar sem orðið hafa. Í henni hafa fundist steingerðar leifar um 40 000 jurta og dýra og hún er því einn gjöfulasti fundarstaður sinnar tegundar í heiminum. Hér má sjá undur þróunarinnar og lífsins fyrir 47 milljónum ára opinberast í 109 jurtategundum, 8 fisktegundum, 31 skriðdýrstegund, 5 tegundum láðs- og lagardýra, rúmlega 50 fuglategundum, að viðbættum 30 tegundum lindýra (einkum skordýr).

Fólk á öllum aldri og af ólíkum uppruna hrífst af sérstöku andrúmslofti þessa staðar. Með því að njóta leiðsagnar lærðra vísindamanna eiga gestir þess kost að kynnast horfnum heimi, þar sem ríkti formfegurð og litadýrð. Heimur regnskógarins, sem umlykur gamlan eldgíg, fylltan af vatni, verður ljóslifandi fyrir augum gestsins. Vegna þeirra stórkostlegu steingerðu  leifa sem hér hafa fundist, og óvenjulega mikilla gæða steingervinganna, hefur tekist að draga upp nákvæma mynd af líffærafræði og lifnaðarháttum hinna horfnu lífvera. Sérstaka athygli vekja í þessu sambandi steingervingar spendýra, steingerðar leifar af frumstæðum hestum. Alls hefur tekist að finna heillegar beinagrindur af rúmlega 30 slíkum fornaldarhestum. Greiningar á innihaldi meltingarfæra hafa gefið vísbendingar um næringu og lifnaðarhætti lífveranna. Messelgryfjan er talin einstakur og tegundaríkur gluggi að lífinu á tertíer-tímanum. Steingervingarnir veita innsýn í heim lífsins, u.þ.b. 13 milljón árum eftir að risaeðlurnar dóu út. Forverar þeirra dýra og jurta sem við þekkjum í dag, hrífa alla sem halda til fundar við fortíðina og fjölda lífvera, sem eru ekki lengur til.
 
Að upphafi síðunnar