UNESCO-heimsminjar í vesturhlutanum
- Dómkirkjan í Aachen
- Hallirnar Augustusburg og Falkenlust í Brühl
- Limes - "varnarveggurinn" - landamćri rómverska ríkisins
- Iđnađarsvćđiđ "Zeche und Kokerei Zollverein"
- Messelgryfjan
- Klaustriđ Lorsch
- Dómkirkan í Köln
- Menningarlandslag efri hluta Miđ-Rínardalsins
- Dómkirkjan í Speyer
- Byggingar frá dögum Rómverja, dómkirkjan og Liebfrauen-kirkjan í Trier
- Járnvinnslan í Völklingen
Hallirnar Augustusburg og Falkenlust í Brühl
Augustusburg-höllin í Brühl telst til þekktustu meistaraverka rókókó-tímans og er sem slík hluti af glæsilegri sögu evrópskrar byggingarlistar á fyrri hluta 18. aldar. Höllin, sem var eftirlætisbústaður Clemens Augusts von Wittelsbach, erkibiskups og kjörfursta af Köln (1700 - 1761) er talin eitt mikilvægasta mannvirki sem byggt var í rókókó-stíl í Þýskalandi. Hjarta hallarinnar Augustusburg er íburðarmikið stigahús, sem Balthasar Neumann hannaði og er hrífandi smíð, þrungin krafti og glæsileika. Frá 1949 til 1996 notuðu bæði forseti og ríkisstjórn Þýskalands Augustusburg-höllina sem stað til að taka á móti tignum gestum. Hallargarðinn, sem er í barokk-stíl, gerði Dominique Girard árið 1728 eftir franskri fyrirmynd. Hann er á okkar dögum einn best varðveitti garður sinnar tegundar frá 18. öld. Skamman spöl frá Augustusburg-höllinni er hinn undurfagri veiðikastastali Falkenlust, einn vinsælasti skemmtikastali sinnar gerðar, byggður á árunum 1729 - 1737. Héðan hélt kjörfurstinn til fálkaveiða, hér tók hann líka á móti gestum og nánum vinkonum sínum. Sem dæmi um einstök og vel varðveitt "Gesamtkunstwerk" frá rókókó-timanum voru báðar þessar byggingar teknar inná heimsminjaskrána.
Ferðavísir
- Prenta síðuna
- Mæla með síðunni
- Bæta síðunni í ferðavísinn
- Fara yfir ferðavísinn
- Bæta við eftirlætissíður
Veldu aðgerð...



