
Aðsetur þýska þingsins og aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Þinghúsið, með glerkúplinum sem var hannaður af hinum heimsfræga arkítekt Sir Norman Foster og hægt er að ganga um, er tákn Berlinar sem nýrrar höfuðborgar.


Aðsetur þýska þingsins og aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Þinghúsið, með glerkúplinum sem var hannaður af hinum heimsfræga arkítekt Sir Norman Foster og hægt er að ganga um, er tákn Berlinar sem nýrrar höfuðborgar.

Hún er táknmynd Dresdens og eitt af mestu meistaraverkum barokk-tímans. Engin önnur bygging er jafn táknræn fyrir sögu Dresdens og Frúar-kirkjan, sem var jöfnuð við jörðu og endurreist frá grunni.

Á rúmlega 300 ára tímabili fólu prússneskir og brandenbúrgískir ráðamenn bestu listamönnum hvers tíma að reisa fjölda halla og gera fagra garða í borginni Potsdam. Glæsilegasta mannvirkið er hin heimsfræga Sanssouci-höll, ásamt hallargarðinum.

Leifarnar af Minningarkirkjunni (Gedächtniskirche) sem var jöfnuð við jörðu í síðari heimsstyrjöld, er tákn fyrir þá Vestur-Berlín, sem var endurreist úr rústunum. Í stað þess að fjarlægja það sem eftir var af krikjunni, hefur hún verið látin standa sem áminning um tilgangslausa eyðileggingu stríðins.

Hið volduga varnarhlið frá 15. öld með turnunum tveimur er táknmynd Lübecks og minnisvarði um gullna tíð borgarinnar sem drottning Hansa-bandalagsins. Mörg fyrirtæki í Lübeck, svo sem marsípanframleiðandinn Niederegger, hafa sett það inn í skjaldarmerki sitt.

Við rætur hinna stórbrotnu Alpafjalla tróna báðar heimsfrægu konungshallirnar. Neuschwanstein-höllin, ævintýrahöll Lúðvíks II., sem er fjölsóttasta mannvirki Þýskalands. Höllin var byggð eftir fyrirmynd þýskra riddarakastala frá miðöldum.

Kastalar. Hallir og miðaldabæir varða veginn á einni vinsælustu ferðamannaleið Þýskalands. Þessi 350 kílómetra langa leið einkennist af undurfögru landslagi, glæstri menningu og fjölbreyttri matargerð.

Enginn staður er jafn dæmigerður fyrir þýska sögu og þessi táknmynd Berlínar. Þegar múrinn féll árið 1989 fögnuðu þúsundir Austur- og Vestur-Þjóðverja landamæraopnuninni og endursameiningu Þýskalands. Brandenborgar-hliðið hefur gríðarlegt aðdráttarafl fyrir alla sem heimsækja Berlín, jafnt háa sem lága.

Með sínum fimm safanbyggingum er Safnaeyjan (Museumsinsel) ein allra merkasta safnaþyrping í heimi. Hér er að finna á einum stað fágæt söfn fornleifa og 19. aldar listar. Þessi söfn, sem eftir stríð skiptust á milli austurs og vesturs, eru aftur sameinuð á Safnaeyjunni.

Meistaraverk gotneskrar byggingarlistar og ein af stórfenglegustu kirkjubyggingum kristninnar. Vegna þess hve risavaxin og einstaklega vel byggð hún er, varð dómkirkjan glæstasti minnivarði um gotneska byggingarlist í heiminum.
Veldu aðgerð...