
Þýska lestar-fyrirtækið
Deutsche Bahn ryður úr vegi hindrunum fyrir þá sem ferðast í hjólastólum og eru líkamlega hreyfihamlaðir. Á síðustu árum hefur fyrirtækið stóraukið þjónustu sína fyrir fatlaða, allt frá skipulagi ferða til aðstoðar við að komast inn og út úr lestunum, sem og með því að gera járnbrautarvagnana og brautarstöðvarnar hjólastóla-vænni. Lestarfyrirtækið hefur jafnframt gert margvíslegar ráðstafanir til að gera fötluðum farþegum undirbúning ferðarinnar og ferðina sjálfa eins þægilega og hægt er. Hægt er að panta þessa þjónustu með því að hringja í þjónustunúmerið 01805/512 512 (mánud. - föstud. Kl. 8 - 20, laugard. Kl. 8 - 16). Sömuleiðis er hægt að panta þjónustuna á netinu á vefsíðunni
www.bahn.de/handicap .
Þeir sem vilja nýta sér þjónustu flugfélagsins
Lufthansa AG til að fljúga án hindrana, ættu að panta hana fyrirfram, helst þegar flugið er bókað. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni
www.lufthansa.com . Ef frekari spurningar koma upp, snúið ykkur þá vinsamlegast til viðkomandi ferðakrifstofu eða beint til Lufthansa. Með því að hringja í síma + 49 (0) 18 03 803 803 er hægt að fá ítarlegri upplýsingar um þessi mál.