beint að efninu beint að aðalvalmynd beint að aukavalmynd beint að leit
 

Select your language:


All other countries:
International websites in English or German
Want to know more about Germany?
Dip into our inspiring eBrochure and get your first impressions about the sheer diversity of Germany as a travel destination. The eBrochure is available in 32 languages.

eBrochure
eBrochure

Further information:
You can find more information about Germany on our website at: www.germany-tourism.de, or on our local websites.

 

Harz og Harzvorland
Lifandi söfn og dýrgripir miðalda-bindingsverks

Rappbodetalsperra á bak við tré
Í gegnum skóga og litríka bæi Harzhéraðsins, að Brockenmassiv. Þar sem nornirnar dönsuðu, sungu og göldruðu. Hérað með líflega sögu, leyndardómsfullar þjóðsögur og goðsagnir.
 
Upphaf síðu

Eystrasalt
Stöndugir bæir, bað-arkítektúr og kyrrlátar strendur

Tveir göngumenn horfa af klettinum út á Eystrasalt
Hansaborgir með ríkar hefðir, bað-arkítektúr með heimsborgarabrag, íburðarmiklar villur og herragarðar, eru minnisvarðar um sögu sjóferða og milliríkjaverslunar.
 
Upphaf síðu

Norðursjór
Grænir flóðgarðar og hvítar strendur

Viti í kvöldskini við Norðursjó
Það er ekki annað hægt en að þykja vænt um þetta vindasamasta hérað Þýskalands. Hvað væri ferð um Norður-Friesland, án þess að fara í gönguferð um grunnsævið á fjöru. Næsta flóð kemur örugglega!
 
Upphaf síðu

Vatnasvæðið í Mecklenburg og hið mecklenburgiska Sviss
Hallir, vötn og furstasetur

Kanóar og bátar í skipastiga á vatnaleið
Stærsta samfellda vatnasvæði í Evrópu – land hinna þúsund vatna og trjágangna. Vegna hins mjúka hæðalandslags hlaut svæðið á milli Teterow og Malchin óvænt nafnið „Sviss“.
 
Upphaf síðu

Weserbergland og Solling
Bingshúsarómantík og Weser-endurreisn

Skip á ánni Weser
Þar sem „Werra og Fulda mynnast“ og áin Weser rennur í gegnum heillandi landslag, er hið sögufræga Weserbergland. Bindingarhúsarómantík og Weser-endurreisnin eru hér hluti af landslaginu.
 
Upphaf síðu

Rínardalur
Í leit að fjársjóðnum rínargulli

Útsýn yfir kastalann Stolzenfels við Koblenz
Fá svæði í heiminum eiga sér jafn magnaða og auðuga sögu og hinn goðsagnakenndi Rínardalur. Hér á hinn skuggalegi Högni að hafa sökkt gulli Niflunga í ánni Rín.
 
Upphaf síðu

Mosel og Saar
Ríesling-vín, Rómverjar og rómantík

Horft frá vínhæðunum yfir „Moselslaufuna“
Einstætt menningarlegt útisafn. Þar sem vínviðurinn teygir sig til himins, koma kræsingarnar frekar úr kjallaranum en úr eldhúsinu. Rieslin-vínið hefur gert héraðið heimsfrægt.
 
Upphaf síðu

Svartiskógur
Háir tindar og upprunaleg rómantísk gljúfur

Lækur sem liðast um Simonswäldertal
Svartiskógur teygir sig eftir Rínarbökkum. Skammt undan eru vatnið Bodensee, Sviss og Elsass-héraðið. Fyrir utan mat og vín hafa ullarkúluhattarnir og gauksklukkurnar borið hróður hans um heiminn.
 
Upphaf síðu

Oberbayern
Draumalandslag og myndabókaþorp – þetta er mikið sjónarspil

Maria Gern kirkjan í dalnum við fjallsræturnar
Er nokkur þörf á að kynna Oberbayern? Það vita jú sjálfsagt allir, að á milli Altmühldalsins og fjallstindsins Zugspitze er mikill fjöldi margbreytilegra og hrífandi náttúruundra.
 
Upphaf síðu

Berchtesgadener Land
Fundur „á toppnum“ með víðsýni á uppleið

Málari á lækjarbakka fyrir framan Ramsauer-kirkjuna
Í þjóðgarðinn Berchtesgaden og síðan uppá Watzmann-tindinn. Hið sögufræga vatn Königsee, með pílagrímakirkju heilags Bartólómeusar, er umlukið bröttum fjöllum líkt og norskur fjörður.
 
Upphaf síðu

Yfirlitskort

Yfirlitskort með öllum vinsælustu ferðamannastöðum Þýskalands
Klikkið hér!